Vortónleikar í Langholtskirkju
5.3.2021 | Mótettukórinn
Efnisskrá tónleikanna má nálgast með því að smella hér!
Fluttar verða glæsilegar 5-8 radda mótettur og sálmavers eftir J.S. BACH og H. SCHÜTZ, útsetningar á Hallgrímssálmum eftir JÓN HLÖÐVER ÁSKELSSON og SMÁRA ÓLASON og orgelverk eftir J.S.BACH.
Mótettukórinn, sem áður starfaði við Hallgrímskirkju í Reykjavík, flytur nokkrar perlur kórtónbókmenntanna í nýju umhverfi, en mótettur eftir Bach og Schütz eru mjög krefjandi og meðal uppáhaldsverka kórsins. Auk þess syngur kórinn bænir Hallgríms Péturssonar sem alltaf hafa verið á verkefnalista kórsins og flytur þannig með sér áratuga langa tengingu kórsinsvið Passíusálmaskáldið Hallgrím Pétursson. Lára Bryndís Eggertsdóttir leikur einleik á hið glæsilega Noack-barokkorgel Langholtskirkju, sem hæfir orgeltónlist Bach einkar vel.
Efnisskrá:
Ég byrja reisu mín, sálmur ísl. þjóðlag úts. Smári Ólason
Víst ertu Jesú kóngur klár, ísl. þjóðlag úts. Jón Hlöðver Áskelsson
J.S. Bach: Der Geist hilft unser Schwachheit auf BWV 226, mótetta fyrir tvo 4 radda kóra
Heinrich Schütz: Also hat Gott die Welt geliebt SWV 380, mótetta fyrir 5 raddir
J.S. Bach: Dýrð sé Guði í hæstu hæðum BWV 30/6, sálmavers
Heinrich Schütz: Die mit Tränen säen SWW 378, mótetta fyrir 5 raddir
J.S. Bach: Flæðið, þér tár BWV 400, sálmavers, einsöngvari: Halldís Ólafsdóttir
Heinrich Schütz: Die Himmel erzählen SWW 386, mótetta fyrir 5 raddir
J.S. Bach: Oss minni sérhver morgunn á BWV 376, sálmavers
J.S. Bach: Orgelverk
J.S. Bach: Singet dem Herrn ein neues Lied BWV 225, mótetta fyrir tvo 4 radda kóra
Flytjendur:
Mótettukórinn
Lára Bryndís Eggertsdóttir: Orgel
Sigurður Halldórsson: Barokkselló
Richard Korn: Violone
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
Miðaverð: 3.900 ISK